Hola Tenerife!

Kæru vinir, ég er flutt til Tenerife. Endanlega þakklát sjálfri mér og fólkinu í kringum mig fyrir að hafa látið þennan draum rætast. Það hefur lengi blundað í mér að flytja erlendis þar sem sólin skín oftar og jafnari hiti er yfir árið og er sá langþráði draumur loksins orðin að veruleika.

Ég og hann Búi minn ákváðum fyrir örugglega um ári eða meira síðan að stefna á að flytja eitthvert og láta þennan sameiginlega draum rætast. Við enduðum síðan bara á því nú nýlega að selja og gefa allt frá okkur, pökkuðum niður í 3 stórar ferðatöskur og flugum svo með köttinn okkar hann Rósant til Tenerife til að hefja nýtt líf saman.

Stefnan er tekin á það að bjóða íslendingum fljótlega upp á jóga hér á Tenerife, bæði hóp- og einkatíma sunnan megin á eyjunni en nánari upplýsingar um það koma fljótlega.

Hlakka til halda áfram að láta draumana rætast og iðka meira jóga á Tenerife.

Namaste!