Kampavínsjóga – Léttum lundina fyrir áramót

Við ætlum svona sannarlega að létta lundina fyrir áramót, skála fyrir því liðna og fagna nýju yogaári ásamt að teygja í leiðinni á lundarvöðvanum (psoas).

Tíminn verður í rólegri kantinum þar sem allar teygjur miðast að mjaðmasvæðinu en skálum inn á milli og smökkum spænskt kampavín (Cava).

Tíminn er 60 mínútur – 1 glas fylgir hverri dýnu – Aðeins 20 pláss í boði.

Verð: 3.800 kr. Skráning á yogalif@yogalif.is eða senda Yogalíf skilaboð á Facebook.

Kennari: Jóna Dögg Sveinbjörnsdóttir
Staðsetning: Yogalíf, Hlíðarsmára 17, 200 Kópavogur
Tímasetning: Laugardagurinn 30. desember, kl. 14:00

Sjá viðburðinn á Facebook.