Yoga Nidra námskeið

Þá er loksins komið að því, en ég verð með 4 vikna lokað námskeið hjá Yoga&Heilsa sem er lítil krúttleg stöð í Ármúla 9 (kjallarinn hjá Hótel Íslandi). En ég er búin að vera að kenna þar síðan í júní í fyrra.

Þetta Yoga Nidra námskeið verður á dagskrá tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20.00 og verðu hver tími er á bilinu 45-60 mín. En eftir því sem líður á námskeiðið þá lengist tíminn sem sjálf hugleiðslan stendur yfir.

Námskeiðið hentar einkar vel þeim sem eru að prófa Yoga Nidra í fyrsta skipti en einnig þeim sem eru vönum.

Yoga Nidra er form af hugleiðslu þar sem iðkandinn liggur og lætur fara vel um sig og er leiddur inn í djúpa slökun. Þessi tegund af hugleiðslu getur hjálpað til við að losa um streitu, bæta svefn, ná tökum á kvíða, þunglyndi og ýmsum einkennum kulnunar meðal annars.

Yoga Nidra hefur verið kallað svefn jóganna þar sem nidra þýðist beint sem svefn. En ólíkt svefni er Yoga Nidra meðvituð djúp slökun þar sem hugurinn er í ástandi milli svefns og vöku. Einmitt í því ástandi er hægt að koma meira jafnvægi á hugann, losa hann undan neikvæðu hugsanamynstri, minnka stress og streitu, og létta á ýmsum líkamlegum kvillum sem fylgja auknu álagi í hraða og annríki nútímans. Þegar við komumst úr áreiti hugans og niður í undirmeðvitundina þá gefum við líkamanum okkar frið til að heila sig og endurnærast. Um 35 mínútur af Yoga Nidra er álíka endurnærandi og 3 tíma svefn.

Uppbygging námskeiðisins:

Vika 1 – Kynnast yoga nidra
Vika 2 – Hlusta á hjartað
Vika 3 – Innri ró
Vika 4 – Líkamsvitun & tilfinningar

Innifalið: Tveir tímar á viku í 4 vikur, aðgangur í alla opna tíma í stundaskrá hjá Yoga&Heilsa.

Allur búnaður er á staðnum en mælt er með því að hver iðkandi hafi sinn búnað með sér, svo sem jógadýnu og teppi og jafnvel kodda.

Skráning: yogaogheilsa@gmail.com